VIÐ NOTUM AÐFERÐIR SEM VIRKA
Gagnreyndar og árangursríkar aðferðir
Hjá Mín líðan er lögð áhersla á að bæta andlega heilsu með árangursríkum, gagnreyndum aðferðum sem sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að virki. Markmið Mín líðan er fyrst og fremst aukið aðgengi að sálfræðiþjónustu ásamt því að bjóða upp á árangursríka og hagstæða sálfræðimeðferð með tilliti til kostnaðar og tíma. Í öðrum löndum er sálfræðimeðferð á netinu vinsælt meðferðarúrræði og er mikilvægt að Íslendingar fái þjónustu í samræmi við nýjustu tækni.
Mín líðan gerir fleirum kleift að leita sér aðstoðar vegna sálræns vanda. Ekki hika við að senda póst á minlidan@minlidan.is ef þú hefur einhverjar spurningar.