Hvað er þunglyndi?
Þunglyndi
- Ert þú oft niðurdregin(n)?
- Finnst þér erfitt að njóta lífsins?
- Ertu hætt(ur) að hafa ánægju af því sem þú gerir í daglegu lífi?
Allir upplifa vanlíðan öðru hvoru, til dæmis við sambandsslit, þegar fólk missir vinnuna eða þegar einhver nákominn manni deyr. Að verða dapur við þess konar aðstæður er eðlileg tilfinning sem minnkar yfirleitt með tímanum þegar við aðlögumst breyttum aðstæðum. Eðlilegt er að finna fyrir depurð öðru hvoru, en ef depurðin er alltaf til staðar getur hún þróast yfir í þunglyndi.
Þunglyndi er mun alvarlegra ástand heldur en eðlileg depurð. Algengt er að fólk eigi í miklum erfiðleikum með að takast á við daglegt líf, forðist samskipti við aðra og einangri sig. Margir finna fyrir vonleysi og eiga erfitt með að sjá tilgang með lífinu. Þunglyndiseinkenni geta verið mjög ólík á milli fólks. Breytilegt er hve mörg einkenni fólk upplifir og hversu alvarleg þau eru. Það sem allir sem upplifa þunglyndi eiga þó sameiginlegt og einkennir þunglyndi er: