Hvað felur svefnvandi barna í sér?
Svefnvandi barna
Svefn hefur áhrif á heilsu og líðan okkar allra. Það er því mikilvægt að leggja strax góðan grunn að heilbrigðum svefnvenjum hjá börnum. Það sem einkennir góðan svefn er:
- Barnið er fljótt að sofna eftir að komið er í rúmið (15 mín)
- Barnið sefur vel yfir nóttina án þess að vakna
- Barnið á auðvelt með að fara á fætur og er ekki þreytt yfir daginn
Algengustu svefnvandamálin eru:
- Barnið er lengi að sofna á kvöldin
- Barnið sýnir mótþróa við að fara í rúmið
- Barnið vaknar á nóttunni eða of snemma á morgnana
Svefnleysi eða léleg gæði svefns getur haft mikil áhrif á líðan og þroska. Barn sem sefur illa líður síður vel yfir daginn. Stundum sýna þessi börn áberandi þreytumerki en stundum eru einkennin minna augljós og birtast í pirringi, erfiðleikum með einbeitingu og að fylgja fyrirmælum. Auk þess getur krefjandi hegðun aukist til muna ásamt því að barnið á erfiðara með að læra nýja hluti. Svefnvandi barnsins hefur líka áhrif á svefn foreldra og líðan þeirra. Talið er að um 20% allra barna eigi við svefnvanda að stríða á einhverjum tímapunkti. Langvarandi svefnvandi lagast yfirleitt ekki að sjálfu sér heldur krefst íhlutunar, það er svefnþjálfunar.
Áður en svefnþjálfun hefst er mikilvægt að útiloka mögulegar líffræðilega ástæður fyrir svefnvandanum, svo sem veikindi, líkamleg óþægindi, hægðatregðu, hormónaójafnvægi eða annað sem krefst læknishjálpar. Stundum er lyfjameðferð notuð samhliða svefnþjálfun ef vandinn leysist ekki.