Hvað er félagsfælni?
Félagsfælni
- Finnst þér erfitt að vera þú sjálf(ur) í kringum annað fólk?
- Finnur þú fyrir kvíða í samskiptum við aðra?
- Ertu félagslega einangruð/aður?
Eðlilegt er að upplifa stundum kvíða í samskiptum við annað fólk. Til dæmis finna margir fyrir kvíða þegar þeir fara í atvinnuviðtal, á stefnumót eða halda ræðu. Þegar kvíðinn er óhóflega mikill og viðvarandi getur verið um félagsfælni að ræða. Félagsfælni (einnig þekkt sem félagskvíði) felur í sér mjög mikla hræðslu við eina eða fleiri félagslegar aðstæður. Félagslegar aðstæður eru allar aðstæður þar sem við sjálf og annað fólk er til staðar, til dæmis að halda uppi samræðum, tala við ókunnuga, halda fyrirlestur, fara í veislu og segja nei við aðra. Fólk forðast þessar aðstæður eða þraukar þær þrátt fyrir mikinn kvíða.
Fólk finnur fyrir kvíða í félagslegum aðstæðum eða við að hugsa um slíkar aðstæður. Ástæða kvíðans er hræðsla við að koma illa fyrir, gera sig að athlægi (t.d. með því að segja eða gera eitthvað vitlaust) og verða metinn á neikvæðan hátt af öðrum. Þeir sem finna fyrir félagsfælni gera ráð fyrir því versta í félagslegum aðstæðum. Þeir gera ekki endilega eitthvað til að verða sér til skammar en óttast að það muni gerast eða halda að þeir hafi orðið sér til skammar.
Félagsfælni getur verið sértæk og átt við ákveðnar félagslegar aðstæður (t.d. að tala við ókunnuga) eða almenn og átt við flestar aðstæður (t.d. að tala við ókunnuga, borða fyrir framan aðra, tala fyrir framan aðra o.s.frv.). Fólk gerir sér grein fyrir að kvíðinn er óhjálplegur og órökréttur en veit ekki hvernig það á að takast á við hann. Einkenni félagsfælni geta verið breytileg hverju sinni og aukist þegar fólk er undir miklu álagi.